Nafn     Lykilorð
Nýskráning
Leturstærð









Þór/KA - Sindri - upphitun
Vísabikarkeppni KSÍ
,,Við verðum auðvitað að hafa fyrir þessu eins og öllu öðru" segir Eva Benediktsdóttir um leikinn á morgun.

Á morgun laugardaginn 28. júní taka Stelpurnar okkar á móti 1. deildarliði Sindra frá Höfn í Hornafirði í Vísabikarkeppni KSÍ. Leikurinn fer fram á Akureyrarvelli og hefst hann kl. 14:00.

Lið Sindra leikur í B- riðli í 1. deild ásamt Hetti frá Egilstöðum, Völsungi, Tindastól og Fjarðarbyggð/Leikni. Lið Sindra er skipað mjög ungu liði þar sem lungin af liðsmönnum þess eru fæddar á bilinu 1988-1993 all flestar. Þó hefur liðið tvær reynslu miklar konur innan sinna raða þ.e. annars vegar Jónu Benný Kristjánsdóttir 28 ára og Söndru Sigurðardóttir sem er elst liðsmanna Sindra 29. ára gömul.

Sindra hefur gegnið þokkalega í 1. deildinni það sem af er móti. Liðið leikur í 5 liða riðli og er í 3 sæti deildarinnar. Liðið hefur unnið 3 leiki og tapað 2. Markahlutfall liðsins er 11-7. Þeirra helsti markaskorari er reynsluboltinn Jóna Benný en af þessum 11 mörkum sem liðið hefur skorað í deildinni hefur hún skorað 6. Á hæla hennar kemur svo Heba Björg Þórhallsdóttir með 4 mörk.

Sindrakonur slógu út lið Hattar frá Egilstöðum í síðustu umferð Vísabikarsins. Sindri sótti Hött heim og skoruðu þær 3 mörk gegn 2 heimamanna. Mörk Sindra í þessum leik skoruðu Heba Björg með eitt mark og Valdís Ósk Sigurðardóttir með 2.

Stelpurnar okkar slógu hins vegar út 1. deildar lið Völsungs frá Húsavík í síðustu umferð í leik þar sem Bojana Besic skoraði jöfnunarmark Þór/KA í uppbótartíma og kom leiknum í framlengingu. Í framlengingunni reyndust Stelpurnar okkar sterkari og komust þær áfram með marki frá Rakel Óla Sigmundsdóttir.

Þótt talsverður styrkleikamunur sé á þessum tveimur liðum er ekki á neinn hátt hægt að bóka fyrirfram auðveldan sigur í þessum leik. Bikarleikir eru svolítið sérstakir fyrir þær sakir að ef lið tapar þá er það búið spil, því býðst ekki annað tækifæri. Hin svokölluðu ,,veikari” lið hafa oftar en ekki komið á óvart og brugðið fæti fyrir sér sterkari liðum þegar hin svokölluðu ,,sterkari” lið vanmeta andstæðing sinn. Það er nokkuð sem við skulum vona að hendi ekki Stelpurnar okkar því ef svo færi fá þær ekki annað tækifæri, og það viljum við ekki.

Stelpurnar okkar hafa sýnt það í leikjum sínum  í sumar að þær eru fanta sterkar og ekkert lið getur gengið að sigrinum sem vísum gegn þeim. Meiðsl hafa verið þó nokkur innan hópsins en þetta langa frí sem liðið hefur fengið ætti að hafa nýst vel við að koma leikmönnum í betra horf. En hvað ætli Dragan Stojanovic segi um leikinn á morgun eru allir leikmenn liðsins klárir?

,,Þessi leikur leggst vel í okkur. Við ætlum okkur ekki að mæta í þennan leik með sama hugarfari og við gerðum í leiknum gegn Völsungi þar sem við vörum heppinn að komast áfram. Þetta snýst um að nota höfuðið í ríkum mæli. Það þýðir ekkert að ætla sér bara að nota lappirnar, í fótbolta þurfa menn að nota höfuðið það er á hreinu. Ástandið í hópnum er ágætt. Þær Arna Sif og Silvía Rán verða þó ekki með þar sem þær eru að taka þátt verkefnum með unglingalandsliðinu. Svo er Karen Nóadóttir en meidd og verður ekki með og þá er Ívana enn svolítið tæp. En við endurheimtum Rakel Hönnudóttir sem gat ekki leikið með í síðasta leik. Þetta er orðið ansi langt hlé sem liðið hefur fengið frá því í seinasta leik og stelpurnar eru orðnar hungraðar í að spila. Ég hef því engar áhyggjur af þessu, ég er þess fullviss að þær mæta til leiks algerlega tilbúnar í slaginn” sagði Dragan að lokum. 


Við heimsóttum liðið fyrr í vikunni og þá tókum við þær Silvíu Rán og Evu Ben tali.

Sylvía Rán hefur spilað mjög vel í vörn Þórs/KA sem af er sumri. Hvernig ætli varnrar jaxlinum lítist á næstu mótherja í bikarnum?

Sylvía: ,,Mér líst bara vel á leikinn. Held að við getum alveg unnið þær, erum alveg með nógu gott lið til þess. Ef við höfuð hausinn í lagi, ættum við alveg að geta unnið þær. Ef við höfum ekki hausinn í lagi verður þetta erfiður leikur fyrir okkur, megum alls ekki vanmeta þær. Ef við erum við hausinn í lagi og spilum af fullum krafti ættum við að geta unnið þær. Við byrjuðum vel í sumar og við höfum alveg verið að spila vel í sumar finnst mér. Vorum reyndar ekki með hausinn í lagi í síðustu tveimur leikjum en við verðum bara að laga það fyrir Sindra leikinn”. Sagði öflugi varnarmaðurinn Sylvía Rán í stuttu spjalli. En eins og aðstæður eru í dag verður Silvía ekki með á laugardaginn þar sem hún er nú þegar komin til móts við unglingalandsliðið.

Meiðsli hafa sett örlítið strik í reikninginn í sumar hjá hinni stórefnilegu knattspyrnukonu Evu Benediktsdóttir, en hvernig ætli leikurinn gegn Sindra leggist í hana?


Eva Benediktsdóttir
: ,,Mér líst bara mjög vel á þetta. Ef við komum ákveðnar til leiks þá getum við alveg unnið Sindra. Ég segi nú kannski ekki að leikurinn eigi eftir að vera léttur. Við verðum auðvitað að hafa fyrir þessu eins og öllu öðru. Eins og ég sagði áður getum við alveg unnið Sindra, enda ættum við að vera með betra lið en þær. Við byrjuðum sumarið af miklum krafti en síðan settu meiðsli smá strik í reikninginn og við höfum verið aðeins að slaka á en ég held að við komum sterkar inn í Sindra leikinn og rífum okkur upp aftur. ”. Segir Eva Benediktsdóttir í stuttu spjalli við heimasíðuna.










Fyrir skömmu birtist grein í Morgunblaðinu eftir 11 ára strák (að verða 12) , Breka Arnarsson sem vakti mikla athygli fjölmargra, sem hana lásu. Þar hvatti Breki Íslendinga til þess að þjappa sér saman á bak við Íslenska A- landslið kvenna í baráttunni í undankeppni EM. Breki skoraði á fólk að fjölmenna á leik Íslendinga og Slóveníu. Þetta náði svo sannarlega til okkar sem sjáum um að skrifa fyrir Stelpurnar okkar í Þór/KA á heimasíðu Þórs.

Við höfðum uppá Breka með það að leiðarljósi að fá hann í viðtal og kanna hverju þessi áhugi hans á íslenska kvennalandsliðinu sætti. Eftir stutt símaspjall var ákveðið að Breki kæmi með á æfingu eitt kvöldið í vikunni. Úr varð að við settumst niður í blíðunni s.l. þriðjudagskvöld á Þórsvellinum og tókum spjall á meðan æfingu hjá Stelpunum okkar stóð. Með Breka kom yngri systir hans sem heitir Agla 10 ára. Breki og Agla hittu Stelpurnar okkar, Dragan Stojanovic þjálfara og Nóa Björnsson forsvarsmann kvennaráðsins. Einnig notuðu krakkarnir tækifærið og skoðuðu Hamar og þá aðstöðu sem þar er.

Breki og Agla hafa búið á Akureyri síðan í júní í fyrra en þau höfðu búið í 8 ár í Þýskalandi og Hollandi með foreldrum sínum.

Í bílnum á leiðinni út á völl fræddu systkinin okkur á því að Ásta Árnadóttir landsliðskona og fyrrum knattspyrnukona úr Þór væri frænka þeirra. Ásta og þau væru bræðrabörn. Gaman er að geta þess að Ásta Árnadóttir sem nú leikur með Val var kjörin íþróttamaður Þórs árið 2002. Þar sem Rakel Hönnudóttir fyrirliði Þór/KA er nú orðin fastamaður í landsliðinu getum við Akureyringar verið stoltir þar sem við teljum okkur eiga talsvert í Ástu enn þá.

En hvað segir Breki af hverju þessi áhugi á Íslenska kvenna landsliðinu og hvað varð til þess að hann skrifaði þessa blaðagrein í Morgunblaðið?

Breki: Ég les mjög mikið um íþróttir og fylgist vel með því sem er að gerast, en maður gat svo lítið lesið um kvennalandsliðið. Svo var það stuttu fyrir landsleikinn gegn Slóveníu að ég var að segja mömmu hvað það væri leiðinlegt að geta ekki lesið meira um íslenska kvennalandsliðið og þá sagði hún bara ,,skrifaðu bara grein í Morgunblaðið um þetta” , sem ég svo bara gerði.

Finnst þér þá of lítið fjallað um íþróttir hjá konum almennt?

Breki: Já mér finnst allt og lítið fjallað um stelpur/konur í íþróttum, þær eru jú líka menn.

Af hverju þessi áhugi?

Breki: Ja bara langar að vita meira um hvað er að gerast hjá kvennaliðinu almennt.

En hefur þú sjálfur æft knattspyrnu?

Breki: Nei aldrei. En ég hef auðvitað gaman af því að leika mér í fótbolta eins og flestir en aldrei æft. Ég æfi sund.

Og hver er uppáhalds greinin hans í sundi?

Breki: Bringusund er mín uppáhalds grein.

Af hverju og ertu góður í bringu?

Breki., Af hverju bringa…. Ja ætli það sé ekki af því að hún er léttust. Já ég er ágætur í bringu.

En ferð þú oft á völlinn og horfir þú mikið á fótbolta í sjónvarpinu?

Breki: Já ég fylgist vel með. Ég reyni að fara oft á völlinn en eftir að ég flutti til Akureyrar þá hef ég ekki farið mikið. En við áttum heima bæði í Þýskalandi og Hollandi og þá fór maður oft á völlinn. Við bjuggum í Hamborg og þar er mikið um fótbolta. Já ég er að hugsa um að fara kannski á völlinn og sjá Þór/KA hér heima. Þeim gengur bara ágætlega það er gott.

En meðan þið bjugguð úti fórstu þá á leiki hjá þessum stóru liðum og var gaman?

Já það var ofboðslega gaman. Ég hélt kannski ekki svo mikið með þessum liðum en stemmingin á vellinum var alveg frábær. Sérstaklega var skemmtilegt að fara á leiki þar sem mikill fjöldi var. Mesti fjöldi sem var á leik sem ég fór á var 57 þúsund manns uppselt þar var æðislegt hjá HSV (Hamburger Sport-Verein)

En sástu einhverja kvennaleiki úti í Þýskalandi?

Breki: Nei það var mjög lítið. Þarna þar sem við vorum var ekki mikið fjallað um knattspyrnu kvenna.

Hvað finnst þér um gengi Íslenska kvennalandsliðsins ertu sáttur við gengi liðsins?

Breki: Já ég er mjög ánægður með gengi liðsins. Við Íslendingar eigum að vera stoltir af liðinu okkar þær standa sig rosalega vel. Nú liðið er komið ansi langt í undankeppninni í EM sem er frábært. Ég hef trú á því að liðinu takist að komast alla leið í lokakeppnina.

En skildi sú athygli sem greinin hans fékk hafa komið honum á óvart?

Breki: Já það kom mér mikið á óvart. Ég átti alls ekki von á því að hún myndi vekja svona mikla athygli. Þetta hjálpar vonandi þegar liðið fær góða umfjöllun.

En hvað með Öglu hefur þú jafn mikið gaman að þessu og Breki?

Agla: Mér finnst þetta mjög gaman. En ég fylgist ekki eins mikið með og Breki. Já við fórum bæði á landsleikinn um daginn það var ofslega gaman, góð stemming.

Breki: Svo er líka Ásta Árnadóttir sem er í landsliðinu frænka okkar. Pabbi hennar og pabbi okkar eru bræður. Ásta var ofsalega flott í landsleiknum, gaman að sjá hana taka t.d. þessi flottu innköst.

Eru mikið um íþróttagen í ættinni?

Breki: Ja svolítið, pabbi var t.d. í fótbolta þegar hann var yngri en hætti þegar við fluttum út. Pabbi æfði með Dalvík en hann er þaðan.

Hvað með þig Agla ert þú í íþróttum?

Agla: Já ég er í sundi og frjálsum. Mér finnst skemmtilegast í spretthlaupum og hástökki og grindahlaupi. Já ég er nokkuð fljót að hlaupa. Svo getur vel verið að ég eigi einhvern tímann eftir að prófa fótbolta.

Að lokum sögðu þau Breki og Agla að það væri allt eins líklegt að þau myndu mæta á völlinn á laugardaginn og fylgjast með Stelpunum okkar í bikarleiknum gegn Sindra þ.e. ef fjölskyldan verður í bænum. Heimasíðan þakkar Breka og systir hans Öglu fyrir spjallið og vonum við að þeim vegni vel í þeim verkefnum sem þau taka sér á hendur. Blaðagreinina hans Breka má sjá hér

Næsti leikur Stelpnanna okkar átti samkvæmt mótaskrá að vera heimaleikur gegn Stjörnunni þann 1. júlí. Þeim leik hefur verið frestað um óákveðin tíma vegna þess að þær Arna Sif og Silvía Rán verða uppteknar með unglingalandsliðinu.

Samkvæmt þessu verður næsti leikur Stelpnanna okkar útileikur gegn Keflavík þriðjudaginn 8. júlí.

Að lokum þetta; Við skulum taka á móti gestum okkar eins og sönnum gestgjöfum sæmir. Fjölmennum á völlinn og styðjum liðið til sigurs og höfum hugfast að knattspyrna er skemmtileg íþrótt. Þáttur okkar stuðningsmanna getur skipt sköpum. Því er mikilvægt að við stöndum þétt að baki liðsins og styðjum þær með jákvæðu og uppbyggjandi hugarfari.

Ath. Frítt á leikinn.

Áfram stelpur í Þór/KA




Tilkynningar

09.02.2010 21:15
Ásvellir
Drengjaflokkur 2009-2010 B riðill
Drengja og 11. flokkur: Leikir
Haukar ÞÓR


27.10.2002 13:00 ÞÓR - Haukar
09.11.2002 19:00 ÞÓR - Fram
10.11.2002 13:00 Afturelding - ÞÓR
16.11.2002 16:30 ÞÓR - Víkingur R.
Íþróttafélagið Þór, Hamri við Skarðshlíð | Sími: 461 20 80 | Fax: 462 23 81 | Hafðu samband