Íþróttaskóli Þórs verður með góðgerðartíma í samstarfi við Kids Cool Shop í íþróttahúsi Síðuskóla fimmtudaginn 6. apríl, skírdag, kl. 8:10-10:00.
Öll börn á aldrinum 2ja til fimm ára eru velkomin. Aðgangur kostar 500 krónur, en það má borga meira. Ágóðinn mun renna í gott málefni og verður einfaldlega kosið um það hver fær að njóta hans þegar fólk mætir á svæðið.