Aþena Ósk á U18 í Pílu

Keppendahópurinn frá Íslandi. Aþena Ósk Óskarsdóttir er önnur frá vinstri á myndinni. Mynd: ÍPS
Keppendahópurinn frá Íslandi. Aþena Ósk Óskarsdóttir er önnur frá vinstri á myndinni. Mynd: ÍPS

Píludeild Þórs er ein sú öflugasta á landinu og hjá deildinni æfir fjöldi fólks pílukast af miklum krafti. Unglingastarfið er blómlegt og það sýnir sig best í því að Þór átti öflugan fulltrúa, hana Aþenu Ósk Óskarsdóttur á U18 Evrópumótinu í Pílukasti sem fram fór fyrir skömmu í Riga í Lettlandi.

Okkar stúlka sig með miklum sóma og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í íþróttinni.