Úr leik í bikarnum

Okkar menn í handboltanum eru úr leik í Powerade bikarkeppninni eftir sex marka tap gegn úrvalsdeildarliði ÍR í Höllinni í dag.

Leikurinn var jafn og spennandi lengi framan af þar sem Þórsarar höfðu yfirhöndina þar til um stundarfjórðungur lifði leiks en þá sigldu gestirnir framúr og unnu að lokum sex marka sigur, 32-36.

Smelltu hér til að skoða umfjöllun Handbolti.is

Næsti leikur okkar manna er gegn HK 2 í Grill 66 deildinni þann 29.nóvember næstkomandi.