Fjórir Þórsarar boðaðir á landsliðsæfingar

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið 28 leikmenn til úrtaksæfinga dagana 26. – 28. nóvember 2024 næstkomandi.

Í hópnum er Þórsarinn Kristófer Kató Friðriksson.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Þórhallur Siggeirsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið 34 leikmenn til úrtaksæfinga dagana 26.-28. nóvember 2024. Æfingarnar fara fram í Miðgarði undir handleiðslu nýs landsliðsþjálfara U15, Ómars Inga Guðmundssonar.

Í hópnum eru þrír Þórsarar; þeir Aron Óli Ödduson, Jón Alex Sveinsson og Smári Signar Viðarsson.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Við óskum strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.