Flottur sigur í Mosfellsbæ

Rafael Victor skoraði tvennu í dag og hinn 15 ára gamli Einar Freyr lék sinn fyrsta deildarleik fyri…
Rafael Victor skoraði tvennu í dag og hinn 15 ára gamli Einar Freyr lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Þór í meistaraflokki.

Þórsarar unnu góðan útisigur á Aftureldingu í Lengjudeildinni í fótbolta í dag.

Okkar menn mættu ákveðnir til leiks og náðu þriggja marka forystu í fyrri hálfleik og unnu að lokum öruggan þriggja marka sigur, 0-3.

Nánar má lesa um leikinn með því að smella hér.

Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn Þrótti næstkomandi laugardag, 20.júlí klukkan 16:00.