Þórs jólakúlan er skyldueign á heimili allra Þórsara. Á hverju ári gefur félagið út nýja kúlu og er þetta fimmta kúlan í röðinni.
Þórs jólakúlan árið 2022 er í mött rauðum lit með hvítu Þórsmerki og stjörnum til skrauts í kring. Allur ágóði af sölu kúlunnar rennur í starfsemi félagsins.
Þegar þú hefur lokið við pöntun á vöruna getur þú sótt hana í Hamar, félagsheimili Þórs. Eina sem þarf að gera er að sýna starfsfólki kvittun þína í símanum eða á útprentuðu blaði.
Ef þú óskar eftir að fá vöruna senda, bætist við sendingakostnaður skv. verðskrá póstsins.
Ef þú lendir í vandræðum með að panta, vinsamlegast sendu póst á jonsi@thorsport.is