Á toppnum eftir sex marka sigur að Ásvöllum

Þór trónir á toppi Grill 66 deildarinnar í handbolta eftir öruggan sigur á Haukum U í kvöld.

Okkar menn höfðu að lokum sex marka sigur, 29-35, eftir að hafa leitt leikinn örugglega frá upphafsmínútum leiksins en staðan í leikhléi var 12-19, Þór í vil.

Þetta var fjórði sigur liðsins í röð og eru Þórsarar nú á toppi deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki.

Nánar er fjallað um leikinn á Akureyri.net

 

Smelltu hér til að skoða leikskýrsluna úr leiknum.

Næsti leikur okkar manna er heimaleikur gegn Herði næstkomandi laugardag, 26.október, í Höllinni.