Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Okkar menn í handboltanum eru komnir áfram í Powerade bikarnum eftir góða ferð til Vestmannaeyja í dag þar sem Þór mætti ÍBV 2, B-liði ÍBV þar sem margar gamlar kempur sýndu listir sínar.
Leikið var í gamla salnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og úr varð hörkuleikur þar sem okkar menn unnu að lokum tveggja marka sigur, 28-30, eftir að hafa leitt með sjö mörkum í leikhléi, 11-17.
Úrslitin þýða að Þór fær úrvalsdeildarlið ÍR í heimsókn í næstu umferð bikarsins sem fyrirhugað er að leika um miðjan nóvember.