Einir á toppnum eftir stórsigur í Höllinni

Strákarnir okkar í handboltanum unnu fjórtán marka sigur á Herði í toppbaráttuslag Grill 66 deildarinnar í handbolta í dag.

Harðverjar höfðu, líkt og okkar menn, unnið alla sína leiki í deildinni fyrir utan fyrsta leik sinn og var því um toppbaráttuslag að ræða. Ísfirðingar náðu að halda í við Þórsliðið fyrstu 20 mínútur leiksins en þá settu okkar menn í annan gír og hreinlega rúlluðu upp leiknum.

Fór að lokum svo að Þór vann fjórtán marka sigur, 33-19. Oddur Gretarsson og Brynjar Hólm Grétarsson voru markahæstu menn Þórs með sjö mörk hvor og þá átti Kristján Páll Steinsson stórleik í markinu.

Smelltu hér til að skoða leikskýrslu leiksins.

Næsti leikur Þórs er bikarleikur gegn ÍBV 2 í Vestmannaeyjum næstkomandi miðvikudag.