Handboltatímabilið hefst á morgun!

Oddur Gretarsson er einn þeirra sem er mættur heim og spilar sinn fyrsta leik fyrir Þór á morgun!
Oddur Gretarsson er einn þeirra sem er mættur heim og spilar sinn fyrsta leik fyrir Þór á morgun!

Eins og glöggir handboltaþórsarar hafa tekið eftir þá hefst keppnistímabil okkar stráka á morgun, föstudag með útileik gegn Víkingi. Vakin skal athygli á því að Víkingar leika heimaleiki síni í Safamýri (sem nú er íþróttahús Víkinga) en ekki í Víkinni!

Við Þórsarar mætum til leiks með sennilega eitt sterkasta Þórslið seinni ára og verður veturinn gífurlega spennandi þó reynslan síni okkur að halda væntingum í hófi!

Leikurinn hefst kl.18.00 og mun heimasíðan (ef allt gengur upp) birta stutta samantekt á morgun á því hvaða leikmenn eru komnir og hverjir eru farnir ásamt örfáum orðum frá forsvarsmönnum félagsins fyrir tímabilið.