Knattspyrna: Þór/KA með sex fulltrúa í U16 og U17

Þór/KA á sex fulltrúa í æfingahópum U16 og U17 landsliða Íslands sem koma saman til æfinga í nóvember.

Aníta Ingvarsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir hafa verið valdar í æfingahóp U16 sem kemur saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ 11.-12. nóvember.

Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir og Eva S. Dolina-Sokolowska hafa verið valdar í æfingahóp U17 sem kemur saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ 14. og 15. nóvember.

Þórður Þórðarson er þjálfari U16 og U17 landsliða kvenna.

Það þarf ekki að koma á óvart að allar hafa þær verið að æfa eitthvað með meistaraflokki á þessu ári og ein þeirra spilaði sínar fyrstu mínútur í Bestu deildinni síðsumars og flestar hinna verið í hóp í einum eða fleiri leikjum. Þá voru þær allar einnig hluti af liði 2. flokks U20 sem vann Íslands- og bikarmeistaratitil í haust á sama tíma og þær voru einnig gjaldgengar í 3. flokki. Smellið á nöfnin til að skoða upplýsingar um hverja og eina í gagnagrunni KSÍ.