Knattspyrna: Þór/KA tekur á móti Fylki

Þór/KA tekur á móti liði Fylkis í 9. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í dag kl. 18.

Fyrir leikinn situr Þór/KA í 3. sætinu með 18 stig úr átta leikjum, hefur unnið sex leiki og tapað tveimur. Síðasti leikur liðsins var útileikur gegn Stjörnunni sem Þór/KA vann 4-1. Fylkir er í 9. sæti Bestu deildarinnar með fimm stig, hefur unnið einn leik, gert tvö jafntefli og tapað fimm. Fylkir tapaði heima fyrir Val í síðustu umferð, 1-4. 

Þór/KA og Fylkir hafa ekki mæst síðan 2021, en Fylkir hefur undanfarin tvö tímabil spilað í Lengjudeildinni. 

Nánar á thorka.is.