Pílukast: Frábær helgi að baki í pílukasti

Síðastliðin laugardag var mikið um dýrðir í pílukasti hér norðan heiða. Á laugardagsmorgni hófst fjórða og síðasta umferð í Dartung á þessu ári í okkar aðstöðu. Dartung er fyrir alla pílukastara á aldrinum 9-18 ára.

20 ungir og efnilegir pílukastarar mættu til leiks og þar af voru 7 keppendur frá píludeild Þórs.

Í flokki drengja á aldrinum 14-18 ára voru tveir keppendur frá píludeild Þórs, Aron Stefánsson og Snæbjörn Ingi. Þeir unnu báðir sína leiki í 8 manna úrslitum og mættust svo í undanúrslitum. Þar hafði Aron betur, 3-2, í hörkuleik. Aron gerði sér svo lítið fyrir og sigraði úrslitaleikinn 4-2. Vel gert hjá Aroni og var hann vel að þessum sigri kominn enda búinn að kasta vel síðustu mánuði.

Í flokki drengja á aldrinum 9-13 ára voru þrír keppendur frá píludeild Þórs, Björn Helgi, Hlynur Orri og Heiðar Ingi. Það var á brattann að sækja fyrir þessa drengi enda öflugir pílukastarar í þessum flokki. Hlynur Orri og Heiðar Ingi duttu út í 8 manna úrslitum en Björn Helgi fór lengst þeirra en hann tapaði 3-1 fyrir Kára Vagni í undanúrslitum. Gaman að segja frá því að Kári Vagn keppti í Sjallanum seinna um kvöldið í úrvalsdeildinni í pílukasti. Flottur árangur hjá þessum drengjum og hafa þeir mætt vel á æfingar hjá píludeild Þórs.

Í stúlknaflokki voru fjórar skráðar til leiks, þar af tvær frá píludeild Þórs, Hrefna Lind og Aþena Ósk. Drengir og stúlkur kepptu saman í riðli og mættust svo stúlkurnar í úrslitaleik í sínum aldursflokki. Í eldri aldursflokkinum mættust Hrefna Lind og Nadía í úrslitum og var það Nadía sem bar sig úr býtum. Í yngri aldursflokki voru það Aþena Ósk og Elín sem mættust. Aþena sigraði úrslitaleikinn örugglega 3-0.

Óskum sigurvegurum í fjórðu umferð í Dartung innilega til hamingju með sigurinn um helgina!
Hér er hægt að skoða úrslit allra leikja.

                     Aron Stefánsson                                             Aþena Ósk
 
Um kvöldið var svo úrvalsdeildin í pílukasti haldin í Sjallanum. Öllu var tjaldað til um kvöldið og var setið í öllum stólum þegar fjörið hófst. Sýnt var frá herlegheitunum í þráðbeinni útsendingu frá Stöð2 Sport. Dilyan Kolev frá píludeild Þórs var í eldlínunni en náði sér ekki á strik. Það hafði þó ekki teljandi áfram á framhaldið hjá Kolev í úrvalsdeildinni þar sem hann var búinn að tryggja sig áfram eftir sigur á fyrsta kvöldi úrvalsdeildarinnar sem haldið var á Selfossi í lok október. 
Kolev verður í eldlínunni næstu tvö laugardagskvöld, en 8 keppendur eru eftir sem berjast um fjögur sæti á úrslitakvöldinu sem verður 7.desember. Úrvalsdeildin verður spiluð á Bullseye það sem eftir er en verður í þráðbeinni útsendingu á Stöð2 sport. Hvetjum þórsara nær og fjær að styðja við bakið á okkar manni en hann er til alls líklegur.
                     Dilyan Kolev