Í september er öllum boðið að koma og prófa pílukast í aðstöðu Píludeilar Þórs í Laugargötu.
Það verður eitthvað fyrir alla hjá Píludeild Þórs í haust/vetur.
- Æfingar fyrir krakka og unglinga (10-18 ára) eru farnar afstað. Æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum frá kl 17:00 - 18:00.
- Almenn opnun á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá kl 19:00 - 22:00. Allir velkomnir að koma og kasta í september.
- Konukvöld hefjast hjá okkur í kvöld (10. sept) og verða annanhvert þriðjudagskvöld til áramóta. Húsið opnar kl 19:30 og opið til kl 22:00. Frítt fyrir allar konur að mæta. Lánspílur á staðnum fyrir þær sem vilja.
- Virk efri ár er samstarfsverkefni með Akureyrarbæ þar sem allir 60 ára og eldri er boðið að koma til okkar og kasta pílum. Byrjar í lok september og verður 1x í viku.
- Mótaröð fyrir meðlimi píludeildar Þórs hefst fimmtudagskvöldið 19. september. Keppt verður annanhvern fimmtudag og verða sex keppniskvöld í heildina. Fjögur bestu gilda. Skráning hefst í lok vikunnar.
- Hægt er að fylgjast með því sem um er að vera hjá Píludeild Þórs á Facebook síðu deildarinnar.
Aðstaða Píludeildar Þórs er í íþróttahúsinu við Laugargötu.
Hægt er að senda fyrirspurn á pila@thorsport.is ef eitthvað er.