Pílukast: Skemmtimót kvenna - allur ágóði rann til KAON

Sigurvegarar kvennamótsins, Ólöf Heiða og Kristín.
Sigurvegarar kvennamótsins, Ólöf Heiða og Kristín.

Það var fjölmennt og mikið fjör hjá píludeild Þórs fimmtudagskvöldið 17.október
Fullt hús af konum sem tóku þátt í skemmtimóti deildarinnar í tilefni af bleikum október.

Alls voru 42 konur skráðar til leiks og spilaður tvímenningur. Sigurvegarar í A keppni voru Ólöf Heiða og Kristín Auðunsdóttir. Í drottningarbikarnum voru það Svala og Lydía sem unnu þann virðulega bikar.

Segja má að allar sem tóku þátt, píludeildin og ekki síst Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hafi verið sigurvegarar kvöldsins því þátttökugjaldið rann óskipt til Krabbameinsfélagsins.

Píludeildin hefur núna í nokkurn tíma staðið fyrir kvennakvöldum í pílukastinu þar sem konum gefst kostur á að koma og prófa. Hægt er að fá lánaðar pílur og fá leiðsögn hjá vönu pílufólki. Kvennakvöldin eru annanhvern þriðjudag, næst kvennakvöld verður 5. nóvember.

Stjórn Píludeildar Þórs þakkar fyrir frábærar viðtökur.

 


Sigurvegarar drottningabikars, Lydía og Svala.

Líf og fjör þetta fimmtudagskvöldið í aðstöðunni okkar!