Rúnar Daði æfir með U15

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla í fótbolta, hefur valið hóp sem æfir dagana 23.-25. september.

Æfingarnar fara fram á Þróttaravelli.

Í hópnum er Þórsarinn Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson. Rúnar var að klára 4.flokk og spilaði alla 14 leiki Þórs þegar liðið hafnaði í 4.sæti A-deildar í sumar. Rúnar var næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 20 mörk auk þess að skora fjögur mörk í tveimur bikarleikjum.

Smelltu hér til að skoða hópinn í heild sinni.

Við óskum Rúnari til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.