Rúnar og félagar í 2.sæti

Rúnar Daði í treyju númer 9.
Rúnar Daði í treyju númer 9.

Þórsarinn Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson lék sína fyrstu landsleiki með U15 ára landsliði Íslands í fótbolta á UEFA Development móti sem fram fór í Búlgaríu í vikunni.

Íslenska liðið hafnaði í 2.sæti eftir 3-1 sigur gegn Wales og 2-0 sigur gegn heimamönnum í Búlgaríu en töpuðu 0-2 fyrir Spánverjum sem unnu riðilinn með yfirburðum.

Rúnar var í byrjunarliði Íslands í sigrinum gegn Búlgaríu, kom inná í hálfleik í sigrinum gegn Wales og spilaði síðustu 15 mínúturnar í tapinu gegn Spánverjum.

Við óskum Rúnari til hamingju með sína fyrstu unglingalandsleiki!