Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Bjarni Guðjón Brynjólfsson lék sína fyrstu landsleiki í vikunni þegar U19 ára landslið Íslands mætti jafnöldrum sínum frá Írlandi. Leikið var á Spáni.
Bjarni Guðjón var í byrjunarliði í fyrri leiknum og lék allan leikinn í 0-3 tapi. Bjarni hóf leik á vinstri kanti en lék á miðjunni í síðari hálfleik.
Hann hóf leik á varamannabekk Íslands þegar liðin mættust öðru sinni í gær en kom inn af bekknum á 60.mínútu og hjálpaði íslenska liðinu að innbyrða 1-0 sigur. Mark Íslands í leiknum skoraði Guðmundur Baldvin Nökkvason.