Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Okkar konur í A-landsliðinu og U19 landsliðinu verða í sviðsljósinu í dag. Sandra María Jessen með A-landsliðinu og þær Amalía Árnadóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir með U19 landsliðinu.
A-landsliðið mætir liði Danmerkur á Laugardalsvellinum og hefst leikurinn kl. 18:30. Leikurinn verður í beinni útsendingu hjá Rúv. Útsending hefst kl. 18:20. Ísland hefur lokið tveimur leikjum í riðlinum, vann Wales heima en tapaði fyrir Þýskalandi ytra. Sandra María var í byrjunarliðinu í báðum leikjunum. Ísland mætir Þýskalandi á Laugardalsvellinum á þriðjudag.
Riðill Íslands (ksi.is)
U19 landsliðið tekur þátt í undanriðli fyrir EM 2024. Leikið er á Arena Kombëtare í Tirana, höfuðborg Albaníu. Ísland vann glæsilegan 6-2 sigur á Skotum í fyrsta leik og mætir liði Belarús í dag kl. 13. Belarús tapaði 0-2 fyrir Serbíu í fyrstu umferðinni.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á YouTube-rás Knattspyrnusambands Albaníu, en einnig verður textalýsing á vef UEFA.
Okkar konur í Albaníu: Steingerður Snorradóttir, Amalía Árnadóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Iðunn Rán Gunnarsdóttir.
Byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Skotlandi. Kimberley Dóra (14) og Iðunn Rán (2) voru í byrjunarliðinu, en Amalía og Steingerður voru varamenn og komu ekki við sögu í leiknum. Mynd: KSÍ.
Upptaka af leik Íslands og Skotlands: