Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Karlaliði Þórs í körfubolta var heldur betur að berast gríðarlegur liðsstyrkur. Enginn annar en Andrius Globys er mættur aftur til liðsins en hann ætti að vera stuðningsmönnum að góðu kunnur. Hann lék síðast með Þór veturinn 2020-2021 við mjög góðan orðstýr undir stjórn Bjarka Ármanns Oddssonar. Globys er hávaxinn og sterkur framherji, fæddur 1995.
Þröstur Jóhannson þjálfari Þórs hafi þetta að segja um komu Litháans: ,,Andrius er fjölhæfur, klár leikmaður. Hann er 29 ára gamall og þó það teljist varla vera gamalt þá hækkar hann meðalaldur liðsins töluvert. Leikmaður með reynslu úr sterkari deildum og mun bæta liðið hvort sem er í leikjum eða á æfingum."