Esther Fokke til Þórs

Esther Fokke
Esther Fokke

Áfram heldur kvennalið Þórs að styrkja í hópinn fyrir komandi tímabil. Hollenska landsliðskonan Esther Fokke er frá Hollandi hefur samið við okkur Þórsara og leikur með liðinu á næsta ári. Hún er 186 cm á hæð og spilar sem framherji. Á síðasta tímabili lék hún í efstu deild Þýskalands með Marburg.

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórs er afar spenntur fyrir leikmanninum; ,,Nú fer allt að smella í tæka tíð fyrir tímabil og það er frábært að Esther bætist í hópinn. Hún kemur til með að hjálpa okkur mikið á báðum endum vallarins ásamt því að hækka meðalhæðina umtalsvert,".

Bjóðum Esther velkomna til Þórs!