Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Við viljum byrja á því að þakka öllum þeim aðilum sem komu að mótinu með einum eða öðrum hætti og úr varð stærsta mót í íslensku pílukasti frá upphafi!
Frábært mót, frábært lokakvöld, frábær mæting, frábært pílukast, stjórn Píludeildar Þórs er ennþá í skýjunum!
Sjallanum var breytt í píluhöll en 36 píluspjöld voru sett upp í Sjallanum.
Keppendur voru 222, 192 karlar og 30 konur. Mótið hófst kl 14:00 á föstudegi þegar 108 karlar mættu til leiks og byrjuðu leiki í sínum riðli. Allt gekk samkvæmt áætlun og seinni riðlar karla og kvennakeppni hófst kl 18:00.
Mikil eftirvænting var í loftinu og tilhlökkun meðal keppenda og andrúmsloftið var frábært. Allir með bros á vör og mættir til að keppa í pílukasti.
Á laugardegi kl 09:00 opnaði Sjallann og keppendur fóru að týnast inn. Útsláttur í A keppni hjá körlum hófst kl 10:00 þegar 128 manna útsláttur hófst. Mikil spenna og ljóst að keppendur voru mættir til að leggja allt í sölurnar og tryggja sér sæti á úrslitakvöldinu.
Riðlakeppni kvenna kláraðist á laugardagsmorgni og útsláttur í forsetabikar hófst kl 11:30 en þar kepptu 60 keppendur um titil.
Kl 13:30 hófust stærstu leikir mótsins hjá körlum þegar 16 manna úrslitin fóru í gang á 8 spjöldum í gryfjunni. Þar voru alvöru einvígi sem áttu sér stað og spennan í loftinu var í hámarki.
Þeir keppendur sem mættust í 16 liða úrslit karla voru:
Það voru því Matti (Píludeild Þórs), Björn Leon, Anton, Óskar J (Píludeild Þórs), Vitor, Friðrik Jakobs, Alexander Veigar og Jón Oddur sem tryggðu sér sæti á úrslitakvöldi SjallyPally25.
Í kvennaflokki fór að draga til tíðinda uppúr kl 13:00 þegar 16 manna útsláttur fór afstað. Kl 14:30 fóru undanúrslit kvenna í gang og það voru eftirfarandi keppendur sem mættust:
Það voru því Ingibjörg og Kitta sem tryggðu sér þátttökurétt á úrslitakvöldi SjallyPally25!
Forsetabikar karla hélt ótrauður áfram og undanúrslitaleikirnir voru spennuþrungnir.
Í úrslitum mættust þórsararnir tveir Árni Gísli og Hannes Bjarni og var það Árni Gísli sem hafði betur, 3-0. Óskum Árna innilega til hamingju með sigurinn.
Hlé var gert á mótinu og öll píluspjöld og búnaður voru borin úr Sjallanum og í staðinn komu inn borð og stólar. Þökkum öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við það!
Kl 18:00 opnaði Sjallinn fyrir þá sem höfðu tryggt sér miða í úrslitakvöldið. 550 manns komu sér fyrir í gryfjunni og á svölunum. Hitinn og spennan var óbærileg í húsinu!
Dóri Ká setti kvöldið af stakri prýði eins og honum einum er lagið. Hann kynnti John McDonald og Russ Bray inn á sviðið og það má segja að salurinn hafi gjörsamlega sprungið og þakið hafið rifnað af kofanum. Fyrstu leikir fóru í gang og pílukastið var gott. Meðaltal var í kringum 70 í flestum leikjum og oft á tíðum hærra. Russ Bray fékk að segja 180 nokkrum sinnum og salurinn elskaði það!
Að endingu voru það Matthías Örn Friðriksson frá Píludeild Þórs og Alexander Veigar sem mættust í úrslitaleik. Báðir voru að spila á tæplega 80 í meðaltali en útskotin voru að stríða Matta og var það Alexander Veigar sem sigraði leikinn 5-1!
Alexander spilaði frábært pílukast í gegnum allt mótið og er vel að sigrinum kominn, óskum honum innilega til hamingju!
Í kvennaflokki voru það Ingibjörg og Kitta sem mættust í úrslitum. Ingibjörg tryllti svo sannarlega salinn með inngöngulaginu sínu og má segja að hún hafi komið sér í góðan gír áður en úrslitaleikurinn hófst.
Ingibjörg spilaði virkilega vel í úrslitaleiknum og vann 4-1! Óskum Ingibjörg innilega til hamingju með sigurinn á SjallyPally25!
Mótsstjórn SjallyPally25 er í skýjunum frá því að mótinu lauk. Gæðin í pílukastinu voru frábær. Matti skellti í 100,7 í avg í einum leik, stóri fiskurinn var dreginn á land af Sigurði Elíassyni. Við verðum þó að biðja Sigurð innilega afsökunar á því að hafa ekki tekið hann uppá svið í verðlaunaafhendingunni, upplýsingar fóru á mis og biðjum við okkar mann afsökunar.
Góðgerðarleikurinn heppnaðist vel en í heildina voru 116x 180’s sem keppendur hentu í! Það safnaðist því 580.000.- (5.000kr fyrir hvert 180’s) sem rennur allt til Hetjanna, félag langveikra barna á norðurlandi. Frábært það!
Sigurvegarar SjallyPally25, í karlaflokki Alexander Veigar og í kvennaflokki Ingibjörg Magnúsdóttir. Með þeim á myndinni eru John McDonald og Russ Bray.
Sigurvegari forsetabikar, Árni Gísli (t.v.) og Hannes Bjarni (t.h.) 2.sæti.
Eftirfarandi fyrirtækjum viljum við þakka fyrir styrki og aðstoð í tengslum við mótið:
SjallyPally26 - undirbúningur er hafinn!