Sterkur útisigur gegn Breiðablik

Reynir var stigahæstur í kvöld.
Mynd: Palli Jóh.
Reynir var stigahæstur í kvöld.
Mynd: Palli Jóh.

Þórsarar heimsóttu Breiðablik í B-deildinni í körfubolta í kvöld og hristu af sér slenið eftir svekkjandi tap gegn KV á heimavelli í síðustu umferð.

Okkar menn tóku strax frumkvæðið í leiknum og fór að lokum svo að Þór vann sex stiga sigur, 82-88. 

Nánar er fjallað um leikinn á Akureyri.net

Næsti leikur okkar manna er heimaleikur gegn Hamri þann 29.nóvember næstkomandi.