Acro verðbréf í samstarf við körfuknattleiksdeild

Velkominn í faðm Þórs, Acro verðbréf!
Velkominn í faðm Þórs, Acro verðbréf!

Það er svo sannarlega alltaf gott að eiga góða að! Acro Verðbréf og körfuknattleiksdeild Þórs undirrituðu nýverið samstarfssamning sem felur í sér myndarlegann sýnileika Acro verðbréfa á heimaleikjum karla og kvenna hjá Þór ásamt því að Acro Verðbréf munu styrkja Pollamót Þórs í körfubolta.

Við bjóðum Acro Verðbréf velkomin í hóp samstarfsaðila körfuknattleiksdeildar Þórs og vitum að samstarfið verður farsælt!