Bjartur Már Guðmundsson er genginn til liðs við Þór og mun klára leiktíðina með strákunum okkar í Grill 66 deildinni.
Bjartur Már er 24 ára miðjumaður/skytta sem kemur til með að styrkja liðið okkar svo um munar en Bjartur var markahæstur í liði Fram 2 á síðustu leiktíð þegar liðið vann Grill 66 deildina.
Hann er uppalinn í HK og hefur einnig leikið með Víking, STÍF í Færeyjum, Roskilde í Danmörku auk Fram. Hann kemur til okkar frá Fram á lánssamningi út tímabilið.
Við bjóðum Bjart velkominn í Þorpið.