Björn Halldór heiðraður af ÍBA

Björn Halldór Sveinsson hlaut heiðursviðurkenningu ÍBA fyrir framlag sitt til Þórs í gegnum árin á íþróttahátíð ÍBA og Akureyrarbæjar í Hofi í kvöld.
 
Sannarlega verðskuldað eins og við Þórsarar vitum vel enda Björn verið áberandi í starfi körfuknattleiksdeildar Þórs um langt skeið.
 

Grípum hér niður í umsögn ÍBA: Björn Halldór Sveinsson er fæddur á Akureyri þann 10.janúar 1963. Björn lék á yngri árum knattspyrnu með Þór og á ungdómsárum skipti Björn yfir í körfuknattleik og lék hann lengi körfuknattleik með Þór og var einn af burðarásum liðsins í áraraðir. Eftir að keppnisferlinum lauk þjálfaði Bjössi yngri flokka félagsins í körfu um tíma en hefur einnig verið einn öflugasti sjálfboðaliði körfuknattleiksdeildar Þórs. Sem slíkur var Bjössi um árabil einn öflugasti dómari deildarinnar og dæmdi jafnt leiki yngri flokka sem og leiki meistaraflokka. Björn er einn þeirra sem er maðurinn á bak við tjöldin, sá sem alltaf er hægt að treysta á og kalla til ef einhver verkefni þarf að vinna. Hann er ávallt reiðubúinn og spyr aldrei hvað félagið getur gert fyrir sig, hann spyr hvað get ég gert fyrir félagið mitt? Björn Halldór Sveinsson sem hefur hlotið silfur- og gullmerki Þórs er gegnheill Þórsari og sannur sjálfboðaliði.

Óskum Bjössa til hamingju með viðurkenninguna.