Hesja mætir til leiks!

Áfram heldur að bætast í myndarlegt safn samstarfsaðila körfuknattleiksdeildar Þórs og nú eru það vinir okkar í Hesju sem næstir eru á vagninn. Hesja er umboðsaðili Segway á Íslandi og ætla að koma sér fyrir á einu af stórglæsilegum skiltum Íþróttahallarinnar í vetur.

Óhætt er að hvetja ævintýra þyrsta Þórsara til þess að kíkja við í Hesju, þar er nefnilega skemmtilegt "dót" sem vert er að gefa gaum!