Frábær sigur á sterku liði FRAM 2

Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson
Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Handboltalið okkar Þórsarara vann gríðarlega góðan og mikilvægan útsigur á Fram2 í Lamhagahöllinni í Úlfarárdal í gær. Lokatölur urðu 33-34.

Eins og tölurnar gefa til kynna var leikurinn afar hraður og skemmtilegur en þó vissulega aðeins á kostnað varnarleiksins. Þórður Tandri Ágústsson og Arnór Þorri Þorsteinsson áttu mjög góðan leik í sókninni. Tandri skoraði 10 mörk og Arnór skoraði 7. Oddur Gretars skilaði að sjálfsögðu góðu sóknarframlagi og var með 6 mörk. 

Eftir smá hikst í fyrsta leik er Þórsliðið komið á sigurbraut með fjögur stig af sex mögulegum og á toppi deildarinnar.