Fyrsta bikarmót ársins

Jakub Biernat sigrar gegn Hlyn Þorra
Jakub Biernat sigrar gegn Hlyn Þorra

Bikarmót 1

Við erum með 4 keppendur skráða í vor bikarmótaröð HNÍ, en bara 3 kepptu á fyrsta mótinu. 

Arnar Geir Kristbjörnsson er að stíga sín fyrstu skref í Óympískum hnefaleikum en er kominn með silfurmerki HNÍ í diplómahnefaleikum. Arnar er með einum öðrum í riðli og heitir hann Arnar Jaki Smárason og keppir fyrir hönd HFK (Hnefaleikafélag Kópavogs). Arnar Jaki byrjaði á að sækja stíft ár Arnar Geir en Arnar var góður að verjast með fótaburði og flottum stungum. Arnar Jaki var ansi ákafur að reyna að sækja á Arnar Geir og það hægði ekki á honum fyrr en Arnar Geir náði honum með flottri hægri hendi beint á lúðurinn. Eftir það var Arnar Jaki töluvert varkárari við að koma nær. En viðureign þeirra var mjög skemmtileg og fékk fólk að sjá mjög flott box. Arnar Jaki fékk sigurinn dæmdan sín meginn hjá öllum dómurunum, en okkur finnst að Arnar Geir eigi flotta möguleika þegar þeir mætast næs 8 febrúar á bikarmóti 2. hér má sjá viðureignina þeirra https://www.youtube.com/watch?v=zskOMP1Jaak

Jakub Biernat er líka að keppa í fyrsta sinn og hann mætti Hlyn Þorra Helgusyni líka úr HFK. Þeir byrjuðu nokkuð skynsamlega og voru að reyna að finna rétta fjarlægð og tímasetja hvorn annan, en fljótlega lenti Jakub góðu höggi með hægri og byrjaði þá að vaða í Hlyn. Jakub stóð sig mjög vel í því að gera daginn erfiðann fyrir Hlyn sem fékk aldrei tíma til finna til öryggis af neinu ráði. Auk þess fékk Hlynur nokkuð góðar blóðnasir í fyrstu lotu sem átti eftir að trufla hann pínu alla viðureignina. Jakub endaði með að vinna þessa viðureign hjá öllum dómurunum, og þeir munu mætast aftur á næsta bikarmóti. Þeirra viðureign má sjá hér https://www.youtube.com/watch?v=tNh0rTnXUkY

Ágúst Davíðsson mætti svo Deimantas Zelvys úr HFH ( Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar). Ágúst hefur unnið sér inn gullmerki HNÍ í diplómahnefaleikum og var þetta í 5 sinn sem hann keppi í Ólympískum Hnefaleikum. Deimantas hefur unnið sér inn bronsmerki HNÍ í diplómahnefaleikum en var að keppa í fyrsta sinn í Olympískum. Ágúst var ansi sleipur í þessari viðureign og var mjög góður að nota blekkingar og fjarlægðir bæði til að skora með höggum og koma sér undan. Ágúst var samt orðinn ansi þreyttur þegar leið á viðureignina náði alltaf að smella andstæðinginn þegar á þurfti að halda, dómarinn gaf svo Deimantas eina talningu uppí 8 eftir fast högg frá Ágústi í þriðju lotu, en viðureignin endaði svo á að Ágúst vann með meirihluta dómaraatkvæða. viðureignina má sjá hér https://www.youtube.com/watch?v=snGSLvA9uoY

Mót Hnefaleikaskóla HNÍ

Hnefaleikaskóli HNÍ var svo með sitt fyrsta mót á árinu og var það haldið á sunnudaginn, við Þórsarar vorum með 7 keppendur.

Bragi Freyr Eiríksson mætti Guðmundi Mána Hildarsyni úr HFR (Hnefaleikafélag Reykjanes). Þeir áttu mjög góða viðureign þar sem Bragi pressaði mest allan tímann. Bragi er að keppa í fyrsta sinn aftur eftir eins árs pásu, og það var gaman að sjá að hann hefur engu gleymt.

Tómas Bergsson mætti Ástmari Steingrímssyni líka úr HFR. Þeir voru báðir mjög hreyfanlegir og voru aðalega að leyta eftir að lenda stungum og hægri beinni. Tómas stóð sig mjög vel í að verjast sóknum frá Ástmari en fékk helst á sig högg þegar Ástmar var að svara sóknum frá Tómasi. En Tómas hefur greinilega bætt sig mjög mikið frá því á seinasta móti og á stutt eftir í bronsmerki HNÍ.

Haukur Ingi Elsuson mætti svo Sindra Má Eiríkssyni úr HFR. Haukur hefur bætt sig mikið frá því að hann keppti síðast. Hann er mun hreyfanlegri en hann hefur verið og stoppaði nánast aldrei á meðan viðureigninni stóð. Hann var duglegur að reyna að nota stunguna en þarf að læra aðeins betur á hvenær hægri hendin á að fylgja. Haukur stóð sig líka mjög vel í að verjast höggum frá andstæðingnum og fékk þau helst á sig þegar hann var að slá ótímabæra hægri hendi. Haukur er að reyna að vinna sig upp að bronsmerki HNÍ.

Mikael Róbert Gunnarsson var að mæta Ísaki Loga Weaver frá HFR. þeir áttu mjög góða viðureign þar sem Ísak sá aðalega um að pressa og Mikael að reyna að koma sér undan. Mikael er að verða ansi sleipur í að búa til pláss fyrir andstæðinginn að stíga inní og ráðast þá inn með góðri högga fléttu. Mikael er að vinna sig í áttina að silfurmerki HNÍ en andstæðingur hans, Ísak Logi fékk einmitt sifurmerki núna eftir þeirra viðureign.

Heimir Magnússon mætti Banuka Matisha úr HFK. Banuka tók örugglega ekki eitt skref afturábak í þessari viðureign, sem varð til þess að Heimir þurfti að vera mjög duglegur að slá og hreyfa sig. Stungur og 1-2 fléttan var uppskrift að frábæru boxi hjá Heimi og fékk hann Diplóma viðurkenningu HNÍ fyrir vikið.

Hannibal Máni Guðmundsson mætti svo Samuel Goliszewski dos Santos Luiz úr HR (Hnefaleikafélag Reykjavíkur). Það var svipað og hjá Heimi, Hannibal þurfti að vera mikið í bakkgírnum og reyna að slá stunguna til að halda andstæðingnum frá sér sem gekk hálf illa. Þetta er samt bara í fyrsta sinn sem Hannibal er að keppa og gerði hann einkar vel í að halda aga við að halda höndunum uppi og reyna ekki að slá mikið af ótímabærum höggum. Hannibal var ekki langt frá diplóma viðurkenningu og verður spennandi að sjá hvort hann ná henni næst.

Páll Magnússon var svo síðastur á svið fyrir okkur Þórsarana. Hann mætti Tristani Breka Cassar Andrasyni sem er alveg fjórum árum eldri en Páll. Það er mjög sjaldgæft að svo stór aldursmunur sé á keppendum í Hnefaleikaskólanum, en það getur stundum verið erfitt að finna andstæðinga sem passa akkúrat fyrir alla. Páll stóð sig samt eins og hetja og var bæði duglegur að nota stunguna sem og að ógna henn til að halda andstæðing sínum í skefjum. Páll var mjög góður í að gefa ekki of mikið eftir þegar Tristan sótti á hann og reyndi að bakka ekki lengra en svo að gott væri að sækja til baka. Þegar viðuregnin var búin var Páll mjög nálægt því að fá diplóma viðurkenningu og verður mjög spennandi að sjá hvort hann nái henni ekki næst þegar hann fær vonandi andstæðing sem er aðeins nær í aldri.