Hafdís Nína með þrennu í stórsigri U16

Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Hafdís Nína Elmarsdóttir eru fulltrúar Þórs/KA í landsliðsverkefni U16 ára landsliðsins sem leikur vináttuleiki gegn Færeyjum í Reykjavík. Fyrri leikur liðanna fór fram í gær og sá síðari fer fram á morgun. Leikirnir fara fram í Miðgarði í Garðabæ. 

Bríet og Hafdís voru báðar í byrjunarliði Íslands á föstudag og við grípum hér niður í umfjöllun af vef Þórs/KA.

Hafdís Nína sýndi flotta takta í fyrsta marki Íslands, lék þá á varnarmann og sendi boltann út í teiginn á Köru Guðmundsdóttur sem skoraði. Hafdís Nína skoraði svo sjálf annað markið á 31. mínútu eftir frábæra sendingu Bríetar Fjólu inn fyrir vörn Færeyinga þar sem Hafdís Nína stakk sér fram fyrir vörnina, var á undan markverðinum í boltann og skoraði úr þröngu færi alveg upp við endamörk. Hún skoraði einnig þriðja mark Íslands af stuttu færi eftir hornspyrnu aðeins fjórum mínútum síðar. Staðan 3-0 eftir fyrri hálfleikinn. Hafdís Nína kláraði svo þrennuna strax á upphafsmínútum seinni hálfleiksins, þrjú mörk á um það bil 17-18 leikmínútum, virkilega vel gert.

Ísland - Færeyjar 6-0 (3-0)

  • 1-0 - Kara Guðmundsdóttir (13'). Stoðsending: Hafdís Nína Elmarsdóttir.
  • 2-0 - Hafdís Nína Elmarsdóttir (31'). Stoðsending: Bríet Fjóla Bjarnadóttir.
  • 3-0 - Hafdís Nína Elmarsdóttir (35').
    - - -
  • 4-0 - Hafdís Nína Elmarsdóttir (47').
  • 5-0 - Anna Katrín Ólafsdóttir (83').
  • 6-0 - Elísabet María Júlíusdóttir (88').
  • Leikskýrslan á vef KSÍ.

Þetta var fyrsti landsleikur þeirra beggja með U16 landsliðinu, en báðar eiga að baki þrjá leiki með U15 landsliði Íslands og í einum þeirra skoraði Hafdís Nína einnig og er því með fjögur mörk í fjórum landsleikjum. Frábærir fulltrúar okkar í þessu U15 landsliði.

Seinni æfingaleikur liðanna fer fram í Miðgarði á morgun, sunnudag, og hefst kl. 13. Hann verður í beinni útsendingu á rás KSÍ í Sjónvarpi Símans, en þar má einnig finna upptöku af leiknum í gær.