Íslandsmeistarar í Rocket League annað árið í röð

Íslandsmeistarar 2024
Mynd af vef Morgunblaðsins.
Íslandsmeistarar 2024
Mynd af vef Morgunblaðsins.

Þór er Íslandsmeistari í Rocket League eftir öruggan sigur á deildarmeisturum OGV í úrslitaleik.

Liðin áttust við í gær og var leikurinn sýndur í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans. Okkar menn mættu virkilega vel stemmdir til leiks og unnu að lokum öruggan 4-1 sigur.

Bjarni Þór Hólmsteinsson, Elias Marjala, Kristján Elmar Gottskálksson og Stefán Máni Unnarsson skipuðu lið Þórs í Rocket League í ár en þetta er annað árið í röð sem Þór hampar Íslandsmeistaratitli í leiknum.

Nánar er fjallað um úrslitaleikinn á vef Morgunblaðsins og á Akureyri.net