Knattspyrna: Frítt á leik Þórs/KA og Vals í boði Bílaleigu Akureyrar

Þór/KA tekur á móti Íslandsmeisturum Vals á Greifavellinum í dag kl. 17:15. Leikurinn er í 2. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Bílaleiga Akureyrar býður öllum á leikinn.

Fyrir leikinn í dag eru liðin í 2. og 3. sæti Bestu deildarinnar, en nokkuð munar þó á stigafjölda. Valur á í harðri baráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn, en liðin eru með 51 og 50 stig. Þór/KA er í 3. sætinu með 33 stig. Öll liðin eiga eftir að leika fjóra leiki.

Hefðbundin upphitun verður fyrir leikinn, grillið funheitt og hamborgararnir ljúffengir beint af grillinu. Ástæða er til að hvetja Akureyringa til að mæta á Greifavöllinn og styðja stelpurnar okkar. Liðið ætlar áfram að berjast fyrir hverju einasta stigi sem í boði er og enda mótið á góðum nótum.

Nánar á thorka.is.