Knattspyrna: Þór/KA mætir Breiðabliki á Kópavogsvelli í dag

Þór/KA sækir Breiðablik heim á Kópavogsvöll í dag kl. 16. Leikurinn er í 16. umferð Bestu deildarinnar. 

Fyrir leikinn í dag er Þór/KA í 3. sæti deildarinnar með 28 stig úr 15 leikjum, en Breiðablik er sæti ofar með 39 stig. Stutt er eftir af deildarkeppni Bestu deildarinnar áður en henni verður tvískipt fyrir lokakafla Íslandsmótsins. Ásamt leiknum í dag á Þór/KA eftir að mæta Stjörnunni á heimavelli og Fylki á útivelli. Þór/KA hefur nú þegar tryggt sér sæti í efri hluta mótsins og á því eftir að spila fimm leiki auk þeirra sem eftir eru af deildinni núna. 

Nánar á thorka.is

 

 

.