Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Sigurganga okkar kvenna í körfuboltanum hélt áfram í kvöld þegar Þór heimsótti Aþenu í Austurberg í Reykjavík.
Aþena situr á botni deildarinnar á meðan okkar konur eru í baráttu um efsta sætið og kom getumunurinn á liðunum í ljós snemma leiks.
Fór að lokum svo að Þór vann tíu stiga sigur eftir að hafa leitt með sautján stigum í leikhléi, 41-58, en lokatölur urðu 85-95. Öruggur sigur þrátt fyrir afleitan fjórða leikhluta hjá okkar konum sem heimakonur unnu 31-12.
Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.
Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn Stjörnunni þann 15.febrúar næstkomandi.