Pílukast: Íslandsmót 301 - silfur til píludeildar Þórs

Óskar Jónasson frá píludeild Þórs, 2.sæti í einmenning karla.
Óskar Jónasson frá píludeild Þórs, 2.sæti í einmenning karla.

Keppt var á laugardag og sunnudag í aðstöðu píludeildar Þórs.

Á laugardag fór fram keppni í tvímenning í karla- og kvennaflokki. 26 karlalið voru skráð til leiks og 7 kvennalið. Keppt var í riðlakeppni og svo útslætti. 9 karlalið voru frá Píludeild Þórs og 3 kvennalið. 

Tvímenningur hófst á laugardagsmorgun kl 10:30:

Í karlaflokki fóru 5 lið frá Píludeild Þórs í 8 manna úrslit:
Davíð Odds & Andri Geir, Dilyan Kolev & Valþór Atli, Sigurður Þórisson & Friðrik Gunnarsson, Matthías Örn & Björn Steinar, Jason Wright & Axel Wright. 

Matthías Örn & Björn Steinar unnu Valþór & Kolev sannfærandi 4-0 og tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Þar mættu þeir Lukasz Knapik og Sebastion Spychala og unnu þá viðureign 5-3. Í úrslitum mættu þeir Árna Ágúst & Arngrími Anton frá pílufélagi Reykjanesbæjar en töðuðu þeim leik 6-4 og 2.sæti því niðurstaðan. 

Í kvennaflokki komust Sunna Valda & Ólöf Heiða í undanúrslit en töpuðu þar gegn verðandi Íslandsmeisturum, Steinunni & Söndru frá pílufélagi Grindavíkur, 5-1. 

 

Einmenningur hófst á sunnudagsmorgun kl 10:30.

Í karlaflokki voru 45 keppendur skráðir til leiks og í kvennaflokki 12 keppendur. í heildina voru 57 keppendur skráðir til leiks. Keppt var í riðlum og útslætti. 

Í heildina voru 23 keppendur frá píludeild Þórs í einmenning, 20 karlar og 3 konur.

  • Í 16 manna úrslitum hjá körlum voru 8 frá píludeild Þórs:
    • Edgars Kede Kedza, Matthías Örn, Viðar Valdimarsson, Óskar Jónasson, Michael Reinhold, Sigurður Þórisson, Davíð Örn Oddsson, Ágúst Örn Vilbergsson.
    • Í 8 manna úrslitum hjá körlum voru 4 frá píludeild Þórs en þeir mættust einbyrðis:
      Matthías Örn vann Edgars Kede Kedza 4-3 í hörkuleik og Óskar Jónasson vann Sigurð Þórisson 4-1. 
  • Í undanúrslitum voru það Matthías Örn og Vitor Charrua sem mættust í frábærum leik. Það fór svo að Vitor sigraði í oddalegg, 5-4. Í hinum undanúrslitaleiknum voru það Óskar Jónasson og Arngrímur Anton sem mættust og var það Óskar Jónasson sem tryggði sér í úrslitaleikinn með 5-3 sigri.
  • Í úrslitum voru það Óskar Jónasson og Vitor Charrua sem mættust. Vitor Charrua sigraði 6-3 og er því Íslandsmeistari í 301 einmenning 2024. 

Gaman að segja frá því það að Óskar Jónasson vann einmitt þennan titil árið 2022 og hefði því verið sætt að fá bikarinn aftur heim.

Í kvennaflokki var það Kolbrún Einarsdóttir frá píludeild Þórs sem komst í 8 manna úrslit en tapaði þar fyrir Steinunni Dagný, 4-2.

Íslandsmeistari í kvennaflokki í 301 einmenning 2024 var Ingibjörg Magnúsdóttir eftir 6-1 sigur á Söndru Dögg. 

 

Stjórn Píludeildar Þórs þakkar öllum keppendum fyrir helgina. Þó svo það hafi verið þröngt oft á tíðum þá gekk mótið vel upp og vonandi fóru allir heim með bros á vör. 

Óskum öllum sigurvegurum til hamingju með Íslandsmeistaratitil í karla- og kvennaflokki.