Pílukast: Þétt dagskrá í pílukasti um helgina

Um helgina fer fram 4. umferð í Flórídana deildinni. Keppt verður í aðstöðu Píludeildar Þórs á laugardag og sunnudag.

Flórídana deildin er leikin bæði í Reykjavík og á Akureyri (NA deild). Í Flórídana deildinni er keppendum skipt niður á deildir eftir meðaltali í umferðinni á undan. Ein efsta deild er fyrir allt landið sem nefnist kristalsdeild. Aðrar deildir skiptast síðan í gulldeild, silfurdeild, bronsdeild, kopardeild o.s.frv. eftir því hve margir keppendur taka þátt hverju sinni á hvoru landssvæði. Keppendur vinna sig upp um deildir með því að enda í efstu tveimur sætunum í deildinni sinni, keppendur falla svo niður um deild með því að enda í tveimur neðstu sætunum í sinni deild. Meðaltal getur einnig haft áhrif hvar keppendur lenda í næstu umferð.

12 keppendur leika í kristals- og gulldeildunum en að hámarki 9 í öðrum deildum. Keppni í kristalsdeild verður í fyrsta skipti í aðstöðu Píludeildar Þórs á morgun (laugardag). Bestu pílukastarar landsins mæta því til leiks á morgun og eru fjórir keppendur frá Píludeild Þórs í kristalsdeildinni í þessari umferð.

Edgars Kede-Kedza, Matthías Örn Friðriksson, Dilyan Kolev og Sigurður Þórisson.

Við hvetjum alla að kíkja við í aðstöðuna á laugardag og horfa á bestu pílukastara landsins etja kappi!

Á sunnudaginn fara svo aðrar deildir í gang, keppni hefst kl 10:30 og húsið opnar kl 09:00. 
50 keppendur eru skráðir til leiks í aðstöðu Píludeildar Þórs og því verður aðstaðan þétt setin og mikið fjör. 

  • Sýnt verður beint frá tveimur spjöldum báða daganna í samstarfi við LiveDartsIceland og hægt að fylgjast með hér.
  • Allir leikir verða spilaðir á Dartconnect og hægt að fylgjast með hverjum einasta leik þar hér.
  • Hægt er að skoða niðurröðun í deildir á heimasíðu Íslenska pílukastsambandsins hér.

 

Áfram Píludeild Þórs!