Sigur eftir hádramatík á Króknum

Hetjan á Króknum í kvöld.
Hetjan á Króknum í kvöld.

Þórsliðið hefur verið á mikilli siglingu undanfarnar vikur en nágrannar okkar hjá Tindastóli hafa verið afar sterkar á heimavelli að undanförnu og því ljóst að um hörkuleik yrði að ræða.

Það var svo sannarlega raunin en Amandine Toi tryggði okkar konum sigur með þriggja stiga körfu á síðustu sekúndu leiksins og lauk leiknum því með þriggja stiga sigri Þórs, 80-83.

Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.

Það er skammt á milli stórleikja hjá Þórsliðinu því næstkomandi laugardag er komið að stórleik í bikarnum þegar topplið Hauka mætir í Höllina í 8-liða úrslitum keppninnar.