Sigur í hörkuleik að Hlíðarenda

KA/Þór styrkti stöðu sína á toppi Grill 66 deildarinnar í handbolta með góðum útisigri á Val 2 í dag.

Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi lengstum en þegar á leið sýndu okkar konur mátt sinn og megin og unnu að lokum tveggja marka sigur, 25-27.

Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.

Næsti leikur KA/Þór er útileikur gegn HK þann 1.febrúar næstkomandi.