Stórsigur í fyrsta leik ársins

Mynd - Akureyri.net
Mynd - Akureyri.net

Okkar menn í handboltanum styrktu stöðu sína á toppi Grill 66 deildarinnar með tólf marka sigri á Fram 2 í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.

Fyrri leikur liðanna vannst með einu marki og var því von á hörkuleik í kvöld en þetta var fyrsti leikur okkar manna á árinu. Þórsliðið mætti vel stemmt til leiks og lagði grunninn að öruggum sigri í fyrri hálfleik en staðan í leikhléi var 21-13 fyrir Þór. Áfram bættu okkar menn við muninn í síðari hálfleik og lauk leiknum 35-23.

Smelltu hér til að skoða leikskýrsluna úr leiknum.

Næsti leikur Þórs er útileikur gegn Selfossi þann 8.febrúar næstkomandi.