Þórsarar unnu toppslaginn

Okkar konur í körfuboltanum héldu áfram sigurgöngunni í kvöld þegar Þórsliðið fékk topplið Hauka í heimsókn.

Um var að ræða uppgjör tveggja efstu liða deildarinnar en liðin mættust síðastliðinn laugardag í 8-liða úrslitum VÍS bikarsins þar sem okkar konur unnu frábæran sigur.

Gangur leiksins í kvöld var keimlíkur bikarleiknum á dögunum þar sem Þórsliðið mætti vel stemmt til leiks í kvöld og hafði töluverða yfirburði framan af en í þriðja leikhluta náðu Haukakonur sér á strik og bjuggu til æsispennandi fjórða leikhluta. Þar reyndist Þórsliðið sterkara og vann að lokum verðskuldaðan sex stiga sigur, 86-80.

Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.

Næsti leikur Þórs er útileikur gegn Aþenu þann 28.janúar næstkomandi.

 

Myndir úr leiknum: Palli Jóh. Smellið á myndina til að opna albúmið.