Úr leik eftir naumt tap að Hlíðarenda

Mynd úr þriðja leik liðanna.
Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net
Mynd úr þriðja leik liðanna.
Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net

Okkar konur í körfuboltanum hafa lokið leik í Bónusdeildinni þetta árið en Þórsliðið féll úr leik í 8-liða úrslitum gegn Val eftir fimm stiga tap að Hlíðarenda í kvöld.

Leiknum lauk 75-70 fyrir Val en okkar konur tóku frumkvæðið snemma leiks og höfðu forystu lengi vel en þegar kom að lokakaflanum sigu heimakonur fram úr og unnu þar með sinn þriðja leik í einvíginu.

Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.

Ítarlega er fjallað um leikinn á Vísi og Karfan.is.