„Væri gaman að koma heim einn daginn og þjálfa“

Mynd - Skapti Hallgrímsson
Mynd - Skapti Hallgrímsson

Þórsarinn Arnór Þór Gunnarsson er ánægður með lífið og tilveruna í Þýskalandi en þar hefur hann leikið og þjálfað við góðan orðstír í fjölda mörg ár. Heimasíðan heyrði í Adda sem sem nú er þjálfari hjá Bergischer HC í þýsku B-deildinni.

„Lífið er fínt í Þýskalandi. Það hefur auðvitað gengið á ýmsu. Við féllum úr Bundesligu í júní í fyrra og þurftum að byggja upp nýtt lið. Fengum níu leikmenn um sumarið og settum saman nýtt lið. Annars hefur tímabilið í deildinni gengið vel og sitjum eins og er í efsta sæti þegar janúar pásan hófst,“ segir Arnór Þór.

Addi er eins og allir vita uppalinn hjá Þór og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir uppeldisfélagið. Þaðan hélt hann suður yfir heiðar til Vals og hélt svo í atvinnumennsku til Þýskalands. Fyrst lék Arnór Þór með Bittenfeld um tveggja ára skeið fór síðan til Bergischer þar sem hann lék í 11 ár og er nú þjálfari. Hann segir skiptin yfir á hliðarlínuna hafa gengið vel. „Það var í raun auðveldara að setja skóna á hilluna en ég hélt það myndi vera. Ég hlakka til á hverjum degi að mæta í vinnuna og vinna með frábærum einstaklingum og leikmönnum.“

Addi hefur komið sér vel fyrir hjá Bergischer

Addi fylgist vel með liði Þórs sem er eins og Bergischer á toppi næst efstu deildar. „Það er mjög jákvætt að sjá hvernig þetta er að þróast heima á Akureyri. Að fá reynda uppalda leikmenn til baka sem geta miðlað sinni reynslu áfram til yngri flokka og þeirra sem eru að byrja sinn feril í meistaraflokk er ómetanlegt. Það tekur tíma að byggja upp yngri flokka og það er erfitt stytta sér leið í þeirri vinnu. Við höfum í gegnum tíðina búið til frábæra handboltamenn sem hafa orðið góðir leikmenn í efstu deild á Íslandi. Við höfum búið til leikmenn sem hafa orðið atvinnumenn og spilað landsleiki. Mitt persónulega mat er að Þór þarf að vera með yfirþjálfara yngri flokka í fullu starfi eins og lið á höfuðborgarsvæðinu eru með. Sá einstaklingur þarf að vinna náið með öllum þjálfurum, móta skýra stefnu og vera með markvisst plan fyrir yngri flokka félagsins.“

Sérðu fyrir þér að koma einn daginn heim í Þorpið og taka við Þór?

„Maður veit aldrei hvað gerist, það væri gaman að koma heim einn daginn og þjálfa.“

Addi var fastamaður í íslenska landsliðinu um langt skeið