Nýjasti leikmaður okkar veit hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig eftir fund með Gunna Mall!
Það er farið að færast líf og fjör í handboltann hjá Þór, leikmenn að koma sér í skóna og byrja maka á sig harpexi.
Nýjasti Þórsarinn Kokí eða Kostadin Petrov lenti í gær ásamt Stevce, svo er von á Jonn Róa í dag. Kokí skrapp í Hamar í morgun og fékk Gunna Mall beint í æð, það er góð byrjun á vonandi farsælum ferli í búningi Þórs
Og að sjálfsögðu ferðast okkar leikmenn með
Niceair til og frá Akureyri. Þvílík snilld að leikmenn okkar geti lent hér í heimabæ okkar fyrirhafnarlaust