Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Fréttavefurinn Akureyri.net segir frá því í skemmtilegri frétt að okkar maður Viðar Ernir Reimarsson er heldur betur að standa sig vel í Evrópumóti U18 í handbolta! Grípum niður í fréttina:
Þórsarinn Viðar Ernir Reimarsson var valinn besti leikmaður Íslands í gær þegar landsliðið sigraði Svartfellinga 30:29 á Evrópumóti 18 ára og yngri í handbolta sem fram fer í Podgorica í Svartfjallalandi. Með sigrinum tryggði liðið sér þátttökurétt bæði á HM 19 ára og yngri á næsta ári og EM 20 ára og yngri eftir tvö ár.
Leikurinn var í milliriðli um 9. til 16. sætið á mótinu, sigur í riðlinum er þegar í höfn og ljóst að liðið leikur um 9. til 12. sæti. Ísland mætir Ítalíu næst, í hádeginu í dag.
Íslendingar voru undir nánast allan tímann í gær en skoruðu þrjú síðustu mörkin. Kjartan Þór Júlíusson gerði sigurmarkið og á síðustu andartökum leiksins skaut einn Svartfallinga í þverslá íslenska marksins úr aukakasti. Kjartan Þór og Viðar Ernir voru markahæstir Íslendinga, gerðu sex mörk hvor, og í leikslok tilkynnti dómnefnd á vefum EHF, Handknattleikssambands Evrópu, að Viðar Ernir hefði verið valinn bestur í íslenska liðinu.