Aron Einar í Þór

Kominn heim. Mynd: Skapti Hallgrímsson / Akureyri.net
Kominn heim. Mynd: Skapti Hallgrímsson / Akureyri.net

Aron Einar Gunnarsson er genginn til liðs við Þór og hefur undirritað samning við knattspyrnudeild Þórs út árið 2025.

Aron Einar snýr heim í Þorpið eftir vægast sagt blómlegan atvinnumannaferil sem spannar átján ár eða allt frá því hann gekk til liðs við AZ Alkmaar frá Þór um mitt sumar 2006, þá sautján ára gamall.

Síðan þá hefur Aron leikið með AZ Alkmaar í Hollandi, Coventry og Cardiff City á Englandi og Al-Arabi í Katar, þaðan sem hann kemur nú til Þórs.

Aron snýr aftur heim í Þorpið sem þriðji leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi; hefur leikið alls 103 A-landsleiki, stærstan hluta þeirra sem fyrirliði og skorað fimm mörk. Aron leiddi íslenska landsliðið í lokakeppni EM 2016 og HM 2018.

Hann var kynntur til leiks við hátíðlega athöfn í Hamri í dag og mun hefja æfingar með Þórsliðinu á mánudag en næsti leikur liðsins er gegn Njarðvík laugardaginn 10.ágúst næstkomandi.