Fjölnir í heimsókn í dag

Við minnum á leik Þórs og Fjölnis í Lengjudeild karla í fótbolta í dag kl.16.00 á Vís-vellinum. Einungis fimm leikir eru eftir af tímabilinu og okkar menn þurfa sigur til að þoka sér lengra frá fallsvæðinu. Enn er tölfræðilegur möguleiki á úrslitakeppni þó að líkurnar verði að teljast hverfandi því miður.