Jan Larsen látinn

Daninn Jan Larsen, sem þjálfaði handboltalið Þórs í upphafi tíunda áratugarins, lést í gærmorgun í Danmörku eftir erfið veikindi.

Larsen var fæddur 16. apríl 1956 og var því á 69. aldursári þegar hann lést. Eftirlifandi eiginkona hans er María Egilsdóttir sem fædd er á Akureyri árið 1957. Foreldrar hennar voru Egill Jónasson og Sigríður Sigmarsdóttir. Dóttir Maríu, sem Jan ættleiddi, er Sigríður, búsett í Danmörku. Synir hennar eru Þórarinn Larsen og Egill Flóki Larsen.

Systkini Maríu Egilsdóttur eru Hólmfríður Svala Jóhannsdóttir, Jónas Óli Egilsson, Ingibjörg Salóme Egilsdóttir og Eygló Egilsdóttir.

Jan Larsen fæddist í Ribe á Jótlandi. Hann hóf ungur að leika handbolta sem markvörður og byrjaði snemma að þjálfa samhliða því. Larsen var aðeins hálfþrítugur þegar hann ákvað að freista gæfunnar og flytja til Akureyrar þar sem hann þjálfaði KA einn vetur, 1982 til 1983.

Það var í Sjallanum á Akureyri sem Jan kynntist Maríu eiginkonu sinni. Hún vann sem barþjónn á þeim fræga skemmtistað.

Jan starfaði sem þjálfari og kennari í Danmörku eftir að fjölskyldan flutti utan á ný eftir veturinn með KA en þau María og Sigríður snéru aftur til Akureyrar árið 1990 þegar hann réð sig sem þjálfara hjá Þór. Því starfi gegndi hann í nokkur ár og kenndi einnig dönsku við Glerárskóla. Leiðin lá til Danmerkur á ný árið 1995 þar sem Larsen starfaði bæði við kennslu og þjálfun nokkurra liða með góðum árangri, og fræðslustörf á vegum danska handknattleikssambandsins.

Fjölskyldan settist að í fæðingarbæ Larsens, Ribe, árið 2019 þar sem hann settist í stjórn síns gamla félags, Ribe HK og tók að sér þjálfun unglingaflokka hjá félaginu. Hann greindist með ólæknandi krabbamein snemma árs 2021.

Íþróttafélagið Þór sendir Maríu og fjölskyldu innilegustu samúðarkveðjur.