Körfuknattleiksdeild Þórs auglýsir eftir þjálfurum

Körfuknattleiksdeild Þórs Akureyrar auglýsir eftir þjálfurum í yngri flokka starf sitt fyrir tímabilið 2024-2025.

 

Í yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Þórs hefur verið sífelld fjölgun milli ára síðustu fimm ár. Hjá deildinni starfa reynslumiklir þjálfarar í bland við unga og efnilega þjálfara.

 

Deildin leitar nú af enn fleiri öflugum einstaklingum til að koma að starfinu en helstu hæfniskröfur eru að aðili sé:

  • áhugasamur og hefur þekkingu á körfubolta
  • sjálfstæður og skipulagður í vinnubrögðum sínum
  • með góða hæfni í mannlegum samskiptum

 

Nánari upplýsingar veitir Daníel Andri Halldórsson, yfirþjálfari yngri flokka kkd. Þórs.

danni@thorsport.is