Mikilvægur leikur og frítt á völlinn

Okkar menn í fótboltanum taka á móti Njarðvík í 16.umferð Lengjudeildarinnar í fótbolta í dag og hefst leikurinn klukkan 16:00.

Einn af aðal samstarfsaðilum knattspyrnudeildar, VÍS, býður á völlinn í dag og færum við þeim þakkir fyrir það um leið og við hvetjum alla Þórsara til að fjölmenna á völlinn og styðja strákana í þessum mikilvæga leik.

Hamar verður opið frá klukkan 13:30 þar sem hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum auk þess sem stórleikur í enska boltanum, nágrannaslagur Man Utd og Man City um Samfélagsskjöldinn, verður sýndur beint á risaskjá.

Sjáumst á vellinum!